Flipinn námsferill geymir upplýsingar um námsferil og námsferilsáætlun nema (sjá einnig 7.2). Hægt er að skoða ferilinn á mismunandi vegu með því að breyta sýninni efst í ferlinum. Hægt er að skoða ferilinn:
Ýtarlegan hver áfangi hefur sér línu í töflunni
Áætlun einungis áfangar sem eru á áætlun
Ferill einungis loknir áfangar
Samantekinn áfangar hafa ekki sér línu í töflunni
Námsgrein skoða t.d. bara ENS
Auðkenni annar er birt í haus töflunnar. Í hverju svæði er birt auðkenni áfanga / staða áfanga (Áætlun, Ólokið, Metið, Lokið, Úrsögn, Fall eða Fall á Önn). Staða áfanga er einnig auðkennd með lit eins og sýnt er í myndinni. Einkunn er birt fyrir lokna áfanga. Forgangur vals (1 er aðalval, 2 er varaval) er birt fyrir ólokna áfanga og áfanga á áætlun. Neðst í listanum er birtur fjölda eininga á önn og fjöldi kennslustunda á önn.